Útskriftarárgangur Kvennó 98

Endurfundir 2008

28.08.2008 12:11:02 / kvenno98

Ekki á morgun heldur hinn!!

Já það styttist í þetta.... nú eru bara tveir dagar fram að hitting... við erum búin að senda tvö bréf í gamaldas-pósti á hópinn, hóa í fólk á Facebook, ásamt því sem við vorum að senda sms á alla sem eru með skráða gemsa núna í morgun þannig að vonandi vita flestir ef ekki allir af þessum hitting núna.... :)

Annars hlakka okkur bara til að hitta ykkur sem flest á laugardaginn í góðum gír... ég veit að N-bekkurinn ætlar að hittast á undan...  og vonandi eru fleiri hópar sem ætla sér slíkt hið sama :)

Sjáumst á laugardagskvöldið kl. 21 á Enska pöbbnum í Austurstrætinu!!!

Yfir og út í bili... 
Tobba, Imma, Elísabet og Sæþór



» 0 hafa sagt sína skoðun

19.08.2008 14:52:44 / kvenno98

ATH!!!! Breytt staðsetning

Afsakið vesenið á okkur... en við urðum að flytja ríjúníon-ið um stað og ætlum nú að hittast á Enska pöbbnum í Austurstrætinu... en stundin er sú sama... laugardagskvöldið 30. ágúst klukkan 21.

Endilega látið fólk vita af breyttri staðsetningu.... 

Svo er spurning hvort að bekkirnir eða minni hópar skelli sér ekki út að borða eða eitthvað á undan til að mynda smá stemningu?!?!? Látum ykkur um þá skipulagninu... en vildum alla vegana læða þeirri hugmynd að ;)

Og munið svo að ef þið eigið skemmtilegar myndir þá getið þið sent þær á vinnustofan@vinnustofan.is og við setjum þær hér inn :)

Hlökkum til að sjá ykkur öll... yfir og út í bili.







» 2 hafa sagt sína skoðun

10.08.2008 21:28:36 / kvenno98

Staður og stund kominn

Jæja, allir saman... nú styttist heldur betur í hitting, staður og stund hefur verið ákveðin...

Það er sem sagt laugardagurinn 30. ágúst á efri hæðinni á Oliver, hún verður lokuð af fyrir okkur frá klukkan 21 og eitthvað fram eftir nóttu, alla vegana fram yfir miðnættið. 

Svo endilega ef þið eigið myndir þá sendið á okkur til að pósta hér... svo okkur verði það í fersku minni hvernig við litum út fyrir tíu árum þegar við hittumst þann þrítugasta... ;)

Yfir og út í bili...

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.04.2008 12:36:15 / kvenno98

Laugardagurinn 30. ágúst 2008!

Jæja 10 ára stúdentsfélagar.... þá er það slegið... laugardaginn 30. ágúst næstkomandi munum við hittast. Staður, stund og annað verður ákveðið síðar og fréttum af því komið áleiðis... 

Gleðilegt sumar !!!!



» 3 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 10:37:15 / kvenno98

Nýjar myndir

Hæhæ allir :)

Frábært að sjá hvað allir taka vel við sér og eru spenntir fyrir því að hittast... Bara ótrúlegt að það séu komin tíu ár síðan við sátum í stúdentsprófslestri...

Sæþór skellti inn nokkrum nýjum partýmyndum... en þær eru náttúrulega flestar af 4N-fólki þar sem við lumum nú helst á þannig myndum... en endilega sendið myndir af partýstandi og öðrum skemmtilegheitum úr hinum bekkjunum og við komum þeim hér inn....

Annars virðist allur árgangurinn plús einn vera búinn að kjósa í könnuninni um dagsetningu á hittingi... þar sem við vorum bara 68 ;) hehehehhehehe
Þannig að ekkert vera að spreða fleiri atkvæðum á könnunina... virðist eins og 30. ágúst hafi vinninginn... meira um það síðar þó, eins og Imma skrifaði hér í kommenti við síðustu færslu :)

Yfir og út í bili....

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 21:21:43 / kvenno98

Hæ öllsömul :)

Nú ætti gamaldags bréfpósturinn að hafa skilað sér í hús til þeirra sem eru með heimilisfang skráð á Íslandi.... en við vildum endilega biðja ykkur sem eruð í sambandi við þá sem búa erlendis að koma á þau slóðinni á þessari síðu svo allir fái að vita af endurfundunum. 

Einnig væri mjög gott ef þið væruð til í að senda póst á tobba@vinnustofan.is úr netfangi sem þið eruð að nota svo við getum líka sent ykkur tölvupóst, því það eiga ekki allar upplýsingar heima á netinu... auk þess sem það er miklu skilvirkara og þægilegra....

Einnig ef einhver lumar á skemmtilegum myndum eða vídeó-um sem við gætum sett hér inn þá endilega sendið það á vinnustofan@vinnustofan.is eða setjið ykkur í samband við Sæþór í síma 897 8225.

Annars rosa gaman að sjá hvað fólk tekur vel við sér og líst vel á þetta.... og við minnum á könnunina hér til hliðar sem við biðjum fólk að taka þátt í til að sjá hvaða dagsetning kemur frekar til greina fyrir hittinginn.

Yfir og út.....



» 17 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 22:37:22 / kvenno98

Hvernig er stemningin?

Hæhæ,

Nú er undirbúningur fyrir reunion-ið hafinn og ekki aftur snúið.  Gaman væri að sjá hvernig stemningin er í hópnum. Skrifið endilega ykkar skoðanir í comment.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í undirbúningnum hafi samband við Immu, imma@olgerdin.is

Kveðja frá undirbúningshópnum,

Elísabet, Imma, Sæþór og Tobba


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 09:39:25 / kvenno98

Könnun

Hæhæ...
ef þið hafið áhuga á að hittast þá endilega takið þátt í könnuninni hér á hægri hönd :)
Takkkkk

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 07:56:22 / kvenno98

Myndaalbúm

Það eru komin inn tvö myndaalbúm, annað með bekkjarmyndunum úr 4 bekk og hitt frá peysufatadeginum 1997.

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 07:55:05 / kvenno98

Bréfsending - RÍJÚNÍON

1998 var árið sem Bill Clinton neitaði að hafa átt í rúmfræðilegu sambandi við Móníku, þetta var árið sem George Michael var handsamaður á viðkvæmu augnabliki á almenningsklósetti og þetta var árið sem Dana transsexjúal International sigraði Júróvisjón. Allir með allt sitt á tæru. 


En hvað vorum við að gera?


Ef þú manst það ekki, er tímabært að hitta besta hóp í heimi og rifja það upp. 


» 0 hafa sagt sína skoðun


Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 10153